the perfect crime
sniðugt
03.10.2006 22:49:26 / magga

BYE BYE LOVE

jæja..

það hefur verið mér sannur heiður að fá að blogga hér á Blog.central og síðan hefur reynst mér vel!! =)

en tímarnir breytast og ég hef stofnað mér nýrra og flottara blogg þar sem ég kem til með að hafa fleiri myndir =) ég get nefninlega ekki sett mínar eigin myndir hér inn sjáið til!!

en nýja addressan mín er http://maggasvava.bloggar.is

endilega munið mig =)

takk kærlega fyrir mig! kv. Magg S.


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 12:13:39 / magga

Bridget Jones

:D:D:D:D get endalaust horft á þessa mynd aftur og aftur!! báðar... loooove it!!

tékkið svo á þessu..

finnst þetta skuggalegt


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 22:33:27 / magga

Reality begins..

ah hvað ég er búin að hafa það einum of gott sl. viku. Kom heim í gær frá Köben með Gunna og shiii hvað við erum búin að hafa það gott!! er ekki alveg að nenna að blogga um það núna, geri það næst!! skelli jafnvel nokkrum myndum og myndböndum inn að gamni..

er komin með bíl!! =) fékk bílinn hans Kidda bró, en nú er hann úti í Köben og á leið til Tékklands í nám... sko kjellinn!! ævintýramennska alveg í gegn

en djísús var ekki að finna mér skó úti!! eða yfirhöfn, eða neitt!! fann ekki neitt í fyrsta sinn í köben... strunsaði strikið fram og til baka, fór í Fields og alles en allt kom fyrir ekki, ég fann ekki neitt á meðan Gunni verslaði tonn af nýjum og flottum fötum á sig, yfirhöfn, 2 skó, milljón buxur, peysur, boli,skyrtur og ég veit ekki hvað og hvað... var orðin nett pirruð á því =( =(  neeeeeinei segi bara svona

segi þetta gott í bili =)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 20:13:35 / magga

så er det kongsens köbenhavn

ó já =) =) =) =)

mun vakna eldsnemma á morgun eða í nótt myndi ég frekar segja!! veit ekki einu sinni hvort ég fer að sofa því ég ætla svo að horfa á Magna sem er búinn klukkan 2 og ég þarf að vakna 4 hálf 5... tekur því kannski ekkert að fara að sofa! kósa magna frekar shibbíí =)

er orðin frekar spennt =) aðalmálið er skólinn sem ég ætla að skoða og sækja um, Krogerup en er ég mest stressuð fyrir lestinni!! þetta kemur, þetta kemur =)

annars er planið að taka strikið með trompi, skella okkur í tívolíið, kíkja í ís á nýhöfninni og jafnvel taka rundtur með nýhafnarbátnum =) þetta verður ljúft..

lítið að gera í vinnunni í dag sem var nett =)

hef svo lítið að segja...

bless í bili :D :D :D vi ses på mandag, tak for mig =)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 00:21:40 / magga

bored!

vá hvað mér leiðist á laugardagskvöldi :| ekkert að gera, ekkert í sjónvarpinu og ég sver það, ég er búin að liggja upp í rúmi eins og flatfiskur í sjó, örugglega í 4 klst!!! baaad ass!!

satt að segja þori ég bara ekki út fyrir hússins dyr!! af ótta við 11 ára dreng sem gæti komið og boðið mér fíkniefni... ó já!! af ótta við 16 ára dreng sem langar bara að prófa að drepa manneskju, baaaara sjá hvernig tilfinningin er!!og af ótta við unglinga óeirðir og uppreisn gegn laganna vörðum sem eru einungis að sinna sínu mikilvæga starfi, Í MÍNU HVERFI eins og Sigrún mín orðar það... OG af ótta við einhvern fávita sem leynist í laugardalnum að kveldi til, stekkur á litlar stelpur, ber þær í klessu með kylfu og hirðir af þeim handtöskuna sem inniheldur jah örugglega eitt stykki síma með límmynd af kitty kisu, og gloss stykki!!! þetta er ekki búið... og ég þori ekki út vegna þess að gaurar stoppa í miðri umferð og draga litlar stelpur sem eru að bíða eftir strætó inn í bílana sína og keyra þær í buskann!!!!

WHATS WRONG WITH PEOPLE!?!?!?!?!

út í allt aðra sálma...

ég er komin með upp í kok af fólki sem spyr: ,,og hvað ætlar þú svo að gera í haust"? svo er ekki nóg fyrir það þegar ég segi ,,ég stefni á lýðháskóla í janúar og er að vinna þangað til" neinei þá spyr það ,,en eftir það"?? hvað heldur fólk að ég sé virkilega búin að plana allt lífið mitt?? NEI ég veit ekki einu sinni í hvaða skó ég ætla í á morgun.... :|:|:| speaking of, ég þarf að kaupa mér nýja skó seeeem minnir mig á það að ég er að fara til Köben á miðvikudaginn WÚÚÚHÚÚÚ!! HELL YEAH eins og tommy L. orðar það svo skemmtilega...

Magnað með hann Magna... ÚÚÚ leikur að orðum ;) ;) ;) mikið rosalega er ég glöð að hann skuli vera kominn í úrslitaþáttinn!! lengra kemst gaurinn ekki... sem er frábært =) ég missi reyndar af þættinum, en ég ætla sko að spurja hótelgaurinn hvort þeir sýni Rockstar, því þá!! þá missi ég ekki af honum =)       useless information...

rosalega er gaman að GOOGLE =) þú getur gogglað allt og það kemur eitthvað... prófaði mig reyndar en það kom ekki mikið út úr því, en sannið til folks einhvern góðan daginn verður hellingur um mig óójá!! þegar ég verð heimsfræg leikkona á íslandi! =)

eins og ég sagði, mér leiðist!! þannig að ég hef ekkert betra að gera en blogga, og það um ekki neitt!!

ég er að fara að eignast bíl í nokkra mánuði ÍÍÍÍ!! reyndar á bróðir minn bílinn en hann er að fara erlendis í nám svo ég fæ að halda honum, sjúbbíídúúú =) hann er samt beinskiptur og ég er EKKI besta manneskjan til að aka um á svoleiðis, hef ekki snert svoleiðis síðan í prófinu :lol::lol::lol: er alger sjálfskiptari ;) ;)

men jah, så skal jeg gå i biblioteken og få en dansk bog til at læse, fordi jeg skal lære mere dansk jah, så jeg kan tale dansk ved folked i min skole jah..

jææææææææja!! góða nótt...


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 20:46:29 / magga

hversu sexy eru þessir menn!!!

Clive Owen:

JD Fortune:

og aalgerlega mitt uppáhald Owen Wilson ;) ;) ;) ;) ;) ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 13:10:09 / magga

Steve Irwing

Leiðinlegt og skrítið að heyra af láti eins frægasta dýralífs-þáttagerðamanni í heimi, Steve Irwing, kallaður krókódíla-hunterinn! sjálf sá ég allnokkra þætti með honum á Animal planet sem er ein af mínum uppáhalds sjónvarpsstöðvum. Stunginn beint í hjartastað af eitraðri skötu.... finnst það pínu ironískt þar sem hann var mest í kringum krókódíla, em já svona er lífið!

fór á tónleika með honum Eyva á föstudaginn, mamma mín bauð! þetta yndi...

 

tónleikarnir voru nokkuð góðir, en bestir eftir hlé þegar aðrir artistar s.s. Björn Jörundur, Ellen Kristjáns, Bergþór Pálsson, Jónsi í svörtum f og Stebbi Hilmars, stigu á svið og fluttu þekkt og góð lög með Eyva. það er samt alveg með ólíkindum hvað ég er óheppin með sætis,,félaga", kellingin við hliðiná mér var í stærri kantinum og greinilega í geðveiku stuði og hún var að slá taktinn á fullu og hreyfa sig í sætinu með þeim afleiðingum að ég var skoppandi allan tímann við hliðiná henni og sætaröðin fyrir framanhana fékk líka að kenna á því... samt þorði enginn að segja neitt við hana!! ég var orðin NETT pirruð á henni og var farin að horfa illkvittnislega á hana í laumi

á laugardaginn var svo partý hjá Kollu, kærasta Andra vinar Gunna og míns, fyrir Gumma! óójá.. þar var opnaður bjór, tekið í svindlspilið actionary og notið góðra stunda..

missti að vísu af lokapartý fjölskyldu-og húsdýragarðsins sem var haldið í sumarbústað einhversstaðar, eeeeen maður verður að velja og hafna!! en djöfull var fáránlega gott veður í bænum um helgina shhitt =)

elsku sunna sykurpúði, velkomin heim í heiðardalinn =)

work calls, bæjó!


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 22:58:11 / magga

Nágrannar!!

 

 

Sky aðalgellan!!! en ÓMG!!! það er sko allt að gerast í nágrönnum núna 8|8|8| ég held ég hafi sjaldan grenjað jafn mikið yfir einum þætti... risa flugslys með öllu fólkinu sem ég þekki og þykir vænt um =(  =(  Serena er pottþétt dáin, ég held það!!! :|

en ertu að grínast í mér hvað ég er spennt yfir Rockstar í kvöld ííííííí....Magni er æðislegur og ég vona að allir ætli að kjósa hann því ég VIL EKKI að hann fari út!! var að skoða fan-siteið hans og það eru sko milljón manns að styðja hann og það er þvílíkt verið að auglýsa kosningar og það ætla ég líka að gera: ALLIR AÐ KJÓSA MAGNA!!! magni er magnaður gaur, MAGNIficent........

fór með mömmu minni í Perluna um daginn og var að skoða víkingasafnið sem er það staðsett. Það er virkilega flott og vel gert! mæli með því að allir leggi leið sína þangað.. það koastar að ég held 800 kjell sem er skítur á priki miðað við hvað þetta er óhemju flott og allt gert af íslendingum

skelltum okkur svo niður í bæ og skoðuðum ljósmyndasýninguna á Austurvelli sem er einnig stórskemmtileg =)

wello well.... =)

er að fara til köben 13. sept og ætla að sækja um skólann minn, shii hvað ég hlakka til að fara þarna! =) eftirvænting í hámarki, var að spjalla við Döggu cool sem er stödd í íþróttalýðháskóla  og segir hún of gaman þarna......

p.s. var að horfa á Night at the Roxbury og djííís hvað hún er yndislega skemmtileg!! mæli með því að allir horfi á hana og ef þú hefur ekki séð hana ertu lúser óójá!!

 

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 09:32:36 / magga

múhahahaaa..

Fór í stórskemmtilegt Road trip með mömmu minni í gær um suðurlandið. =)

ég elska að fara út á land, komast út úr Reykjavík horfa á kýrnar, hestana og kindurnar bíta gras í haganum og fá ferskasta loft í heimi í lungun óóójá....

byrjuðum á því að fá okkur "hádegismat" á Hlíðarenda á Hvolsvelli  en hann var síður en svo hollur hjá mér, sooooo what! næst fórum við að Seljalandsfossi

sem er gullfallegur og það skemmtilega við hann er að maður getur labbað bak við hann. ég var nú ekki alveg að fara að þora því en mamma var harðákveðin í að nú værum við komnar og skyldum svo sannarlega labba þarna á bakvið. og btw það var fullt af túristum þarna, virkilega vel klæddir eins og sönnum túristum sæmir.

um morguninn hafði ég ákveðið að vera kvenleg, sæt og fín og klæddi mig í gallapilsið mitt og ég tók ekki úlpu með mér heldur flíspeysuna mína góðu! anyways við byrjum að KLIFRA þetta og það var pínu MIKIÐ rok þannig að fossinn var gersamlega út um allt!!! það var sko drulla og svað og allt rennandiblautt og ég að klifra fjallið í pilsinu mínu.... svo komumst við á bak við og það var rossalega fallegt =)  get nú ekki sagt annað!!

við komum til baka og ég er gersamlega soaking og það er gaur þarna sem er túristi (mjög pretty samt) og hann er á hjólaferðalagi greinilega, hann hafði verið að fylgjast með okkur mæðgum og mér í pilsinu mínu að klifra og hann skellihló!! =/ kannski ekki skellihló en hann gaf mér svona look -þú ert nú meiri fábjáninn- -átt þú ekki að heita íslendingur, og kannt ekki að klæð þig- -haha hvað þú ert kjánaleg- svo hló hann pínu út í annað munnvikið!! ég dreif mig inn í bíl og næst þegar ég fer þarna verð ég deffenetly ekki í pilsi!

ferðin heldur áfram og við förum að Skógum, þar er Skógafoss sem er stór og fallegur og þar er byggðasafn sem er mjög merkilegt að skoða. gamlar samgöngur, burstabær, gamalt skólahús, gömul kirka og fullt af eldgömlum ísl. munum sem er gaman að skoða, já og myndir líka ;) ;) mæli með þessu ef fólk er að spá í að fara út á land að gera eitthvað skemmtilegt =)

einnig keyrðum við framhjá Stóra Dímon en hann er á Njáluslóðum, kíktum á Þorsteins-lund minnir mig að það heiti, en Þorsteinn er eitt af okkar ástsælu skáldum og meðal verka hans eru: Göngum, göngum, göngum upp í gilið, hm hm hmhm og svo framvegis jájá....... það var fallegur garður sem var, nei okei ekki fallegur því enginn hirðir um hann og kindur ganga þar lausar pfff....

en jaaaá ákvað að deila lífsreynslu minni hér!

eigið góða helgi, I will....


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 20:13:24 / magga

No problem for john boblem

hahahaha.... góður frasi þessi =)

menninganótt: ömurleg flugeldasýning (heyri ég frá mörgum), ég drakk of mikið af hinu góða og komin heim í rúm að sofa kl. 1:00 ggrrreat!

mætti nokkuð þunn í vinnuna síðasta daginn sem var æðislegur og ömurlegur. lenti í ökuskólanum og mátti þessvegna ekki fara í turninn en ég dýrka að vinna í því tæki!! ójá.. það var sjúklega gott veður og ég kom heim mjög svo útitekin, en það var líka fo** brjálað að gera... sssshiii var með feitustu beinverki í löppunum þegar ég kom heim!

byrja í nýju vinnunni minni á miðvikudaginn sjíbbíí =)

allir að byrja í skólanum.... ekki ég... :|

fer til danmerkur þann 13. september. það er bæði gott og slæmt!! gott því ég er að fara til danmerkur =) og slæmt því ég get ekki hætt að horfa og fylgjast með rock star: supernova og þennan dag er víst úrslitakvölið shhiiii!!!!!! ohh svekkelsi maður...

bjó til mitt fyrsta salat í kvöld =) ýkt gott, er ekki vön því að borða grænmeti en nú verður sko tekið á því óóóójá... skellti í mig hagaeitthvað salati, papriku og tómat! ég er að segja ykkur það að rauð paprika er djúúúúsí góð! =)

sofnaði í gær klukkan 11 um kvöldið! það hefur ekki gerst síðan ég var 11 ára....

en ég ætla að halda áfram að horfa á Friends mitt algerlega uppáhald!!!

=) tak for mig =)

og já hey, p.s. var að setja inn skoðanakönnun bara að gamni! =)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 17:55:01 / magga

FOOOOKK!!

Magni er svo fokking geðbilaður söngvari að ég fór að hágrenja í gær!!!!!

yfirleitt fer ég ekki að grenja yfir söngvurum en það kom sko flóð í gær and i´m not ashamed! shiiit dísús kræst.........

ýkt fúl að hann skyldi lenda í 3 manna botninum en nú þurfa allir að vera duglegir að kjósa, en sko shitturinn titturinn hvað ég á ekki til orð yfir því hvað magni er feitast besti söngvari sem ég hef heyrt í!! algerlega í uppáhaldi hjá mér núna...

go magni!!

alger töffari og ýkt kúl gaur óóóóójá!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 20:07:10 / magga

Mekong

já sveeeiii mér ef spánverjarnir komu ekki bara með góða veðrið með sér!!!! það er svoleiðis búið að vera bongóblíða í dag....

grilluðum þessa dýrindis máltíð, ég er ennþá með vant í munninum og ætlaði EKKI að tíma að hætta borða!! =/

talandi um mat (that´s me), þá fórum við gunni í gær á Mekong og þetta var í FYRSTA sinn sem ég hef á ævi minni farið á Thailenskan stað og er ég ýkt stolt af því! fékk bara nokkuð góðan mat og gæti.... gæti jafnvel farið aftur einhverntíman

góð saga...

ég fór í brúðkaup á laugardaginn hjá Kalla frænda og Bylgju konu hans. vígslan fór fram í Bessastaðakirkju en þangað hef ég bara aldrei komið. Davíð Smári þandi raddböndin og Bylgja var svakalega fín í kjólnum og ég var að berjast við tárin allan tímann.... fékk geðveikan mat í veislunni eftirá og dansaði svo heilmikið við frænkur mínar 3 Telmu, Aþenu og Perlu litlu sætu sem var alvöru prinsessa í Fríðu kjól.

eftir herlegheitin fór ég í staffapartý sem var alveg ágætt, fegin að komast heim samt og svaf MIKIÐ...held ég hafi ekki vaknað fyrr en hálf 3 daginn eftir =/

en leikurinn er byrjaður! ætlaði að vera geðveikt kúl og segja við gunna: hey eigum við ekki að horfa á boltann saman haaa og sló svona í öxlina á honum. Þá segir hann: jújú ef þú talar ekki eins mikið og þú gerðir síðast!! what??????

ekki sátt


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 20:02:19 / magga

ááááts!

síðastliðna daga er ég búin að vera með stingandi tannpínu, en þar sem ég þoli ekki að fara til tannlæknis þá hef ég bitið á jaxlinn (en mig verkjaði einmitt svakalega í honum)!!! svoo kom bara að því að ég þoldi þetta ekki lengur og hringdi í tannsa og kvaðst vera með tannpínu, gat ekki borðað og varla talað, svo ég fékk tíma í dag. shiii hvað ég var kvíðin að fara til hans því ég var svo viss um að hann myndi segja: jahá þú ert sko með risa RISA endajaxl em þarf að rífa úr þér... (iú iú iú)!

einu sinni þegar ég var lítil og sæt stelpa í Hveragerði fór ég til tannsa þar, og á undan mér var stelpa sem var að koma úr svona jaxlatöku og hún var með blóð í munninum og bólgin as hell, og síðan þá hef ég alltaf kviðið þessu!!

ég settist í stólinn og ákvað að vera róleg. Svo kemur hann með þið vitið krók, ýkt beittur og byrjar að hamast eitthvað í kjaftinum á mér og hamast á tönninni sem mér var drulluillt í og ég sver það ég fór næstum því að grenja þetta var svo vont! hann tók líka einhverjar myndir og svona en síðan sagði hann: jahá þetta er bara smá bólga og af myndunum sé ég að þú ert ekki með EINN EINASTA ENDAJAXL!!!!!!!

mæææææ goooood!!!!!!!! þetta var besta tannlæknaferð sem ég hef á ævi minni farið í...shit ég er sko búin að brosa hringinn í allan dag og þarf aldrei að hugsa um endajaxlatöku aftur :lol::lol::lol::lol::lol::lol:

skemmtileg saga ekki satt =)

svo er bara wedding tomorrow......

yessss, over and out ;) ;) ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 19:39:11 / magga

=) =)

hey ho! =)

verslunarmannahelgin bara búin, sem þýðir að sumarið er að verða búið :|  ég var að vinna þessa ágætu helgi og það var miikið að gera í garðinum. lots and lots of pípol. vann líka í miðasölunni á Stuðmenn og ég held ég hafi aldrei afgreitt jafn marga á jafn stuttum tíma! i was on fire... þúsund manns frá 7 til 10! shiii ég var uppgefin. Kíkti til Lindu og Anniku í smá bjór, snakk og white chicks! virkilega gaman og ég þakka kærlega fyrir mig =)

óóótrúlegt en núna er ég komin í 8 daga frí frá vinnunni minni í garðinum og á bara 3 daga eftir. jiiii hvað á ég að gera?? er með tvennt í höndunum en veit ekki neitt. ætla að fara í september til DK að kíkja á skólann sem ég ætla að sækja um þar =) hlakka til þess.

en djís hvað það er fáránlega mikið af geitungum núna. þeir sem lifðu af eru allir að fljúga á mig og gera mér lífið leitt =/ ég er sko SHITT hrædd við geituna og læt eins og 12 ára gelgja þegar þeir koma nálægt mér en það er bara eitthvað innbyggt =/ ojj svo eru þeir allir í rusatunnunum og ooooojjjjj =(

er að horfa á Beverly Hills núna og djöfull er Sanders LJÓTUR GAUR!!! dííís ég get ekki horft á hann, með mullett og ógeð! yfirleitt finnst mér það flott, jafnvel sexy en hahaha þessi gaur er glataður!!

Magni bara að standa sig í Rock star... bíð spennt eftir þættinum í kvöld =)

magga over and out!

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 20:00:34 / magga

Sigurrós

skellti mér á sigurrós í gær! hef einhvernveginn aldrei kynnst þessari hljómsveit alemnnilega svo nú gafst tækifærið og ekki sé ég eftir því.... Sigurrós er falleg hljómsveit. get ekki sagt neitt annað!! fékk gæsahúð og tár í augun, FEITAST!

gítar

hér sést glitta í gítarleikarann, við vorum svo langt í burtu að við sáum þá ekki en samt náðum við þessari mynd einhvernveginn =)

tók líka myndband, smá brot af uppáhaldslaginu mínu með þeim... vonandi að þetta virki =)

ah get ekki sett það inn á bloggið mitt, en hér er allavegana slóðin ef einhver vill hlusta: http://s98.photobucket.com/albums/l264/maggasvava/sigurros/?action=view&current=SSM10561.flv&refPage=&imgAnch=imgAnch2

takk takk fyrir mig =)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13